Skólastjóri náðist á upptöku segja að stelpur sem eru ekki í stærð 0 eða 2 (bandarískar stærðir) „líta feitar út“ þegar þær eru í leggings og eiga ekki að klæðast þeim. Skólastjórinn sem um ræðir er Heather Taylor og er skólastjórinn í Stratford High School í South Carolina. WCBD-TV greinir frá.
Eftir að upptakan kom í ljós hélt skólastjórinn fund með nemendum skólans. Á fundinum hélt Heather því fram að hún var ekki að reyna að móðga neinn.
Heather Taylor sagði þessi ummæli á fundi um viðeigandi klæðnað nemenda og reglur skólans um klæðnað. Hér er það sem hún sagði, samkvæmt ABC News 4. Þú getur einnig hlustað af hluta af upptökunni á vefsíðu WCBD-TV.
„Leggings er ætlað að klæðast undir síðum bol eða skyrtu sem hylur rassinn þinn, eða einhvers konar síðri peysu, eða kjól. Leggings er ekki ætlað að vera buxur og ef þú ert í bol sem nær hingað, þá ertu að sýna allt. Já allt. Það sorglega við það, dömur – ef einhver hefur ekki sagt ykkur það áður þá segi ég ykkur það núna – nema þú sért í stærð 0 eða 2, og klæðist einhverju svona, þó þú sért ekki feit þá líturðu út fyrir að vera feit.“
Eins og við mátti búast þá ollu ummælin fjaðrafoki. Facebook síða skólans fylltist af ummælum frá reiðum foreldrum og öðrum sem voru að fylgjast með umræðunni.
„Ég er ekki í stærð 0 og mér fannst ég eiginlega vera skotmark vegna stærðar minnar,“
sagði Allison Veazey, nemandi í Stratford High School, við WCBD-TV.
Samkvæmt The Huffington Post segja reglur skólans um klæðnað að leggings, sokkabuxur, jóga buxur og spandex buxur eru leyfðar undir klæðnaði sem hylur líkamann niður að miðju læri. Sem þýðir að það má ekki klæðast leggings sem buxum. En reglur skólans taka ekkert fram um stærð nemanda enda eiga þær ekki að gera það.
Skólastjórinn gaf út yfirlýsingu vegna ummælanna:
„Í gær og í morgun þá hitti ég alla bekki í Stratford High Scool. Ég ræddi um ummælin mín og sagði frá hjartanu að minn ásetningur var ekki að særa eða móðga neinn. Ég fullvissaði nemendurna að ég væri einn af stærstu aðdáendum þeirra og árangur þeirra skipti mig miklu máli. Eftir að hafa talað við nemendur okkar og fengið stuðning frá þeim, þá er ég fullviss að saman erum við tilbúin að halda áfram og eiga frábært ár. Stratford High er mjög umhyggjusamt samfélag og ég vil þakka öllum þeim foreldrum og nemendum sem hafa veitt mér stuðning og gefið mér tækifæri að ávarpa áhyggjur þeirra. Ég er mjög stolt af vera Stratford Knight.“