Söngkonan og gyðjan Rihanna var að kaupa sér nýtt heimili í Hollywood Hills fyrir rúmlega 700 milljónir króna. Þetta er ekkert venjulegt hús heldur glæsilegt höfðingjasetur eins og sést á meðfylgjandi myndum. E! News greinir frá. Í þessu stórfenglega höfðingjasetri er hvorki meira né minna en níu baðherbergi. Það er einnig falleg og rúmgóð sundlaug, bíóherbergi, risastórt fataherbergi og líkamsræktarherbergi. Rihanna á einnig eign við ströndina í heimalandi sínu Barbados sem hún keypti árið 2013.
Ef þú hefur einhvern tíman velt því fyrir því hvers konar heimili Rihanna mundi kaupa, sjáðu myndirnar hér fyrir neðan!