Það eru komin fimm ár síðan framleiðslu Jersey Shore raunveruleikaþáttana lauk. Þættirnir voru sýndir á MTV á árunum 2009-2012. Bleikt fjallaði fyrr í vikunni um væntanlegt „reunion“ og hvernig stjörnurnar líta út núna.
Nicole „Snooki“ Polizzi, Mike „The Situation“ Sorrentino, Sammi „Sweetheart“ Giancola, Jenni „JWoww“ Faley og Paul „Pauly D“ DelVecchio hafa komið saman fyrir svokallaðan „reunion“ þátt E!News sem heitir Road Trip Reunion: Return To the Jersey Shore. Þátturinn verður sýndur þann 20. ágúst næstkomandi.
Við fáum að sjá smá brot úr þættinum en þar ræða þau um fyrri „hook-ups“ eins og þegar JWoww og Pauly D sváfu saman. Snooki spyr JWoww
„Mundirðu sofa aftur hjá Pauly D?“
JWoww spyr þá til baka: „mundirðu sofa aftur hjá Mike?“