Fræga fólkið hefur mikil áhrif á okkur og sýn okkar á heiminn. Við ölumst upp við að sjá stjörnurnar í sjónvarpinu, auglýsingum, tímaritum, kvikmyndum og á fleiri stöðum. Hægt og rólega byrjar ákveðin ímynd að skapast í huganum okkur, bjöguð ímynd um hvað er fallegt og hvað er fullkomið. Ímynd sem á sér ekki stoð í raunveruleikanum. Förðunarmeistarar, hárgreiðsumeistarar, rándýr tískuföt, photoshop og fleira spilar inn í uppbyggingu á þessum bjagaða raunveruleika sem við berum okkur saman við. Okkur finnst stundum við aldrei nógu góðar eða fallegar því við lítum ekki út eins og stjörnurnar sem eru óaðfinnanlegar í tímaritunum eða á rauða dreglinum.
Sem betur fer hefur meiri vitund um þessi mál skapast á síðustu árum og eru margar stjörnur duglegar að birta myndir af sér ómáluðum og óbreyttum. Þær eru alveg jafn glæsilegar og ef ekki glæsilegri því maður fær að sjá mannlegri hlið. Mannlegu hliðina sem minnir okkur á að stjörnurnar eru alveg eins og við. Enginn er eins og það er ekki til neitt sem heitir fullkomið.
Hér eru myndir af frægum stjörnum ómáluðum. Gullfallegar!
Myndir frá Seventeen og BuzzFanzine.