Mikilvægur þáttur í fallegri förðun er góður grunnur og lokaskref svo förðunin endist vel og lengi. Við mælum með því að þú prófir þessar dásamlegu vörur frá L’Oréal með þínum uppáhalds farða. Konur um allan heim eru að missa sig yfir Infallible farðagrunninum og fixing mist spreyinu og ekki skemmir verðið fyrir.
Eftir að þú setur á þig rakakrem þá grunnar þú andliitið með Infallible Priming Base farðagrunninum sem er fullkomlega mattur og hentar vel undir alla farða. Þetta er gelkenndur primer sem fyllir vel upp í húðholur án þess að stífla og gerir húðina ómótstæðilega mjúka.
Eftir farðaásetningu þá spreyjaru Infallible Fixing Mist yfir allt andlitið til þess að festa förðunina. Þetta fjarlægir líka alla púðuráferð. Þetta æðislega setting sprey setur farða og hyljara á augabragði. Spreyið er frískandi, létt og ilmar dásamlega. Hristu spreyið vel fyrir notkun og haltu flöskunni sirka 15 til 20 cm frá andlitinu. Úðaðu síðan yfir andlitið eins og þú sért að skrifa X og T með því. Það tryggir jafna dreifingu en spreyið sér til þess að förðunin haldist frísk og fullkomin allan daginn.