Stórstjarnan og söngkonan Selena Gomez var að gefa út nýtt tónlistarmyndband við lagið „Fetish.“ Hún gaf út lagið og annað myndband fyrir það fyrr í mánuðinum en nú hefur hún gefið út formlegt myndband við lagið.
Það er einskonar „70’s suburban“ stíll á tónlistarmyndbandinu. Glöggur aðdáandi benti á að í myndbandinu mætti einnig sjá hrollvekjuáhrif sem söngkonan staðfesti sjálf á Instagram.