Þegar barnið manns er óvenju hljóðlátt í næsta herbergi þá veit maður oftast að eitthvað grunsamlegt á sér stað. Til dæmis ákvað kannski barnið að teikna á alla stofuveggina eða dreifa hveiti um allt eldhús. Börnum dettur ýmislegt í hug og hér fyrir neðan eru nokkrar skemmtilegar myndir sem sýna af hverju það á ekki að skilja börn ein eftir.