Það er alltaf mikið gleðiefni fyrir spennta foreldra að tilkynna að fjölskyldan sé að stækka. Það er misjafnt hvort fólk tilkynni það á samfélagsmiðlum eða í raunheimum en á okkar tæknivæddu tímum hið fyrrnefnda verið venjan. Við þekkjum þessar klassísku myndir, eins og þar sem pínkulitlum skóm er stillt upp hliðin á sónarmynd eða verðandi foreldrar brosa breitt og halda utan um bumbuna sem fer stækkandi.
Sjá einnig: Par sem var sagt að þau gætu ekki eignast börn tilkynna meðgönguna á stórkostlegan hátt
Margir hafa tekið upp á því að hrista aðeins upp í hlutunum og leyfa hugmyndafluginu að ráða ríkjum og gera ótrúlega sniðuga og skemmtilega mynd.
Sjá einnig: Krúttlegar aðferðir til að tilkynna fæðingu barna