Söngkonan og gyðjan Beyoncé hefur birt fyrstu myndina af tvíburunum sínum og eiginmanns hennar, rapparans Jay-Z. Það er mánuður síðan tvíburarnir komu í heiminn. Beyoncé skrifaði með myndinni „Sir Carter og Rumi eins mánaða í dag“ en hjónin sóttu um höfundarrétt á nöfnunum tveimur í lok júní.
Myndin er með svipuð þemu eins og myndin sem Beyoncé birti þegar hún tilkynnti að hún væri ólétt.