Tasha Maile er vídeóbloggari og kallar sig „Spiritual Tasha Mama“ á YouTube. Hún hefur verið dugleg að berjast gegn „mæðra-skömm“ (e. mom-shaming), en á þá við hluti eins og þegar mæður eru skammaðar eða smánaðar fyrir til dæmis að gefa barni brjóst á almannafæri.
Tasha er með yfir hálfa milljón fylgjendur á YouTube rásinni sinni. Fyrir tveimur árum fannst fólk hún hafa gengið of langt þegar hún sagði í myndbandi að hún hefur stundað kynlíf á meðan hún er að gefa barninu sínu brjóst.
Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan þar sem hún ræðir um kynlíf og í lok myndbandsins ræðir hún um að stunda kynlíf og gefa barni brjóst á sama tíma.