Ég fékk um daginn bækling í leikskólanum hjá syni mínum sem fjallaði um myndbirtingu barna á netinu. Þá var verið að tala um myndir af börnum þar sem þau eru nakin í baði til dæmis. Þó að við sjálf horfum á myndir af börnunum okkar og sjáum bara fallega stund eru því miður einstaklingar þarna úti sem eru sjúkir og geta misnotað svona myndir.
Einnig var talað um myndir sem börnin einfaldlega vilja ekki láta birta af sér eða myndir sem sýna barnið í vandræðalegum aðstæðum. Það gæti sett barnið í erfiða stöðu gagnvart bekkjarfélögunum ef þeir kæmust yfir slíkar myndir. Eins þegar skrifað er á samfélagsmiðlum um vandræðaleg atvik sem barnið lendir í.
Mér fannst líka ágætis punkturinn um hópmyndir af börnum. Það er að hafa í huga þó maður sjálfur vilji birta mynd barninu sínu á netinu vilja aðrir foreldrar það kannski ekki og því ætti maður að ganga úr skugga um að það sé í lagi áður en maður birtir myndina.
Ég held nú að flestir hafi þetta á bak við eyrað en þó kemur það fyrir öðru hvoru að maður rekist á myndir af börnum sem ættu kannski frekar heima í persónulega myndaalbúminu heima. Aðal málið er að sýna bara almenna skynsemi þegar kemur að því að birta myndir eða frásagnir af börnum á netinu.
-Rúna Sævarsdóttir
Greinin birtist fyrst á Öskubuska.is og er endurbirt hér með góðfúslegu leyfi höfundar.