Á mánudaginn gaf íslenski tölvuleikjaframleiðandinn Rosamosi út glænýjan tölvuleik fyrir snjalltæki. Leikurinn heitir Mussila Planets og er sá fjórði í Mussila leikjaseríunni þar sem músíkölsk skrímsli af ýmsum gerðum halda uppi taktinum á samnefndri ævintýraeyju. Markmið leiksins er a leysa þrautir sem gera notendum kleift að þekkja nótur, takt, hljóðfæri og þjálfa tóneyrað í skapandi leik.
[ref]http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett/ferdast-til-framandi-planeta-i-nyjum-islenskum-tolvuleik[/ref]