Þær Andrea Magnúsdóttir og Elísabet Gunnarsdóttir hafa hannað æðislega boli með merkingunni „Konur eru konum bestar.“ Það var Rakel Tómasdóttir sem hannaði letrið en ljósmyndarinn Aldís Pálsdóttir tók myndirnar fyrir þetta frábæra verkefni. Bolirnir fara í sölu seinna í dag en ágóðinn rennur til Kvennnaathvarfsins. Þessar mögnuðu konur vilja breyta neikvæðu hugarfari og vonum við á Bleikt að sem flestar styðji við þetta og mæti á viðburðinn þeirra í dag.
Í bloggfærslu á Trendnet skrifaði Elísabet: „Neikvæðni og slæmt umtal virðist vera orðið daglegt brauð í nútíma samfélagi og á netinu virðist fólk hafa leyfi til að ráðast á hvern sem er með orðum. Orð geta verið álög og þetta er eitthvað sem þarf að bæta og helst breyta. Við erum fyrirmyndir komandi kynslóða og þurfum að sýna meiri kærleik og virðingu gagnavart náunganum.“
Á viðburðinum á Facebook stendur: „KONUR ERU KONUM BESTAR …hljómar það ekki miklu betur en þessi gamla leiðinlega lína sem við erum vanar að heyra? Lítil breyting á gamalli setningu en risa breyting á hugarfari.“
Viðburðurinn verður í verslun Andreu á Laugarveginum í dag en þar ætla konur að fagna saman breyttu hugafari í fáránlega flottum stuttermabolum á milli 17 og 20. Stuttermabolurinn „Konur eru konum bestar“ kostar 5.900 og kemur í glæsilegum taupoka. 100 fyrstu pokarnir innihalda að auki nýjasta Glamour og rauðan varalit frá Loreal.
Þið getið líka hjálpað við að dreifa boðskapnum með því að merkja mynd af ykkur á Instagram með #konurerukonumbestar