Leikarinn Jonah Hill hefur breytt algjörlega um lífsstíl eins og sjá má á þessum myndum. Jonah þyngdi sig um 20 kíló fyrir kvikmyndina War Dogs en hefur síðan tapað þeim aftur og sennilega nokkrum til viðbótar. Jonah borðar hollt og æfir reglulega en þegar hann ákvað að breyta lífi sínu leitaði hann til Channing Tatum, meðleikara sínum úr kvikmyndinni 21 Jump Street. Channing sagði honum að að hann myndi auðvitað léttast með því að breyta mataræðinu og fá sér einkaþjálfara. Í kjölfarið setti hann Jonah í samband við fólk sem hann þekkti, meðal annars einkaþjálfara og næringarfræðing. Eftir að myndir birtust af Jonah í vikunni hafa aðdáendur hans hrósað honum mikið fyrir árangurinn á samfélagsmiðlum.