fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024

„Hafði hann meira og minna misþyrmt henni alla nóttina og svipt hana frelsi til útöngu úr húsinu“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 21. júní 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðrún Sverrisdóttir starfaði sem hjúkrunarkona í 40 ár á sviði Slysadeildar Borgarspítalans þar sem hún kynntist öllum hliðum og þáttum mannlífsins. „Oft fór maður heim, miður sín og bugaður eftir sumar spítalavaktirnar. Heimilisofbeldi, misnotkun á börnum og misþyrmingar á konum var einnig tilfinningalega erfiðast að vinna við og taka á móti,“ skrifar Guðrún í grein sem birtist fyrst á Kjarnanum. Í greininni segir hún frá ofbeldi sem dóttir hennar varð fyrir en máli hennar var vísað fá vegna formgalla frá hendi ákæruvaldsins.

Myndin tengist fréttinni ekki beint/Getty

„Fyrir tveimur árum síðan stóð ég sjálf berskjölduð frammi fyrir ljótleika heimilisofbeldis,“

skrifar Guðrún. Myndir um þau ljótu tilvik ofbeldis sem Guðrún hafði séð og tekið á móti á Slysadeild birtust skyndilega heima hjá henni. Yngsta dóttir hennar kom heim til hennar eftir að hafa sloppið úr klóm mannsins sem hún bjó með.

„Hafði hann meira og minna misþyrmt henni alla nóttina og svipt hana frelsi til útgöngu úr húsinu. Fyrir framan mig stóð unga, fallega, góða dóttir mín – niðurbrotin manneskja á líkama og sál. Sítt hárið hékk í tætlum niður eftir bak­inu eftir að hann dró hana fram og til bak­a á hár­inu. Hár­svörð­ur­inn var þak­inn kúl­um. Hún var rispuð og marin í and­liti. Háls­inn var þak­inn mar­blettum beggja vegna eftir kyrk­ingstak fingra. Eyrun bólg­in, hvellrauð og brjóskið marið eftir að hann hélt í eyrun til að lemja höfð­inu niður í stól­inn og stein­gólf­ið. Það blæddi úr eyrna­hlust­inni öðru meg­in. Skafsár voru á herða­blöðum og mjó­baki eftir að hann dró hana á bak­inu eftir stein­gólf­in­u. F­ingraför/mar­blettir voru á báðum fram­hand­leggj­um. Rispuð og marin á mjöðm og fót­um, helaum yfir brjóst­bein­i,“

Guðrún segir að hann sé sterkur maður og lítið mál fyrir hann að keyra dóttur hennar ofan í stólinn, lyfta henni upp á samt stólnum og skella henni, baki og höfði, ítrekað í gólfið. Hins vegar var ekki dæmt í málinu og var því vísað frá Hæstarétti vegna formgalla frá hendi ákæruvaldsins.

Erna Guðmundsdóttir, Ransý Guðmundsdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir, systur konunnar, tjáðu sig um málið í aðsendri grein til Kjarnans. Þar gagnrýna þær dómskerfið harðlega og útskýra hvað varð til þess að Hæstiréttur vísaði málinu frá. Mistök lögreglu, eins og að gleyma að kveikja á upptökutæki við skýrslutöku og senda ofbeldismanninum bréf um að rannsókn málsins væri hætt, fyrir þann tíma sem dóttir Guðrúnar hafði til að staðfesta kæruna, leiddu til þess að málinu var vísað frá.

Sjá einnig: Opna sig um heimilisofbeldi sem systir þeirra varð fyrir: „Þessa sömu nótt ógnaði hann systur okkar með borvél“

„Mis­tök á mis­tök ofan ollu því að máli dóttur minn­ar, Guð­rúnar Guð­munds­dóttur (Rúnu) var vísað frá­ Hæsta­rétti vegna form­galla frá hendi ákæru­valds­ins. Að öðl­ast rétt­læti fyrir rang­læti – fór fyrir lít­ið. Hver ætlar að svara fyrir það?“

skrifar Guðrún Sverrisdóttir í grein sinni sem lesa má í heild sinni á vef Kjarnans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum
Jökull á heimleið
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Strákarnir okkar niður um eitt sæti þrátt fyrir glæstan sigur á Wembley

Strákarnir okkar niður um eitt sæti þrátt fyrir glæstan sigur á Wembley
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Árásin á íslensku fjölskylduna á Krít tilefnislaus – Fjölskyldufaðirinn þarf að fara í aðgerð en einn árásarmaðurinn fundinn

Árásin á íslensku fjölskylduna á Krít tilefnislaus – Fjölskyldufaðirinn þarf að fara í aðgerð en einn árásarmaðurinn fundinn
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Upp úr sauð í Breiðholti: Viðstaddir fullyrða að Baldvin segi ekki alla söguna – „Framkoma hans var til skammar“

Upp úr sauð í Breiðholti: Viðstaddir fullyrða að Baldvin segi ekki alla söguna – „Framkoma hans var til skammar“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Vill taka við enska landsliðinu

Vill taka við enska landsliðinu
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Mogginn gagnrýnir lögreglustjóra harðlega – „Ljóst að Höllu Bergþóru lög­reglu­stjóra varð illi­lega á í mess­unni“

Mogginn gagnrýnir lögreglustjóra harðlega – „Ljóst að Höllu Bergþóru lög­reglu­stjóra varð illi­lega á í mess­unni“
Matur
Fyrir 7 klukkutímum

Skíthæll í Costco vekur hlátur

Skíthæll í Costco vekur hlátur
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Eiginkona Arons Einars tjáir sig um framtíðina

Eiginkona Arons Einars tjáir sig um framtíðina
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Íris Dögg ráðin framkvæmdastjóri geðheilbrigðisþjónustu

Íris Dögg ráðin framkvæmdastjóri geðheilbrigðisþjónustu

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.