Í febrúar gengu Scott og Shandace Robertson í hjónaband en skondin uppákoma í brúðkaupsmyndatökunni hefur vakið mikla lukku á síðunni Imgur. Scott deildi nokkrum myndum á síðunni af fallegu augnabliki sem átti sér stað úti á götu þegar lítil stúlka gekk framhjá þeim með móður sinni. Litla stúlkan sá Shandace í brúðarkjólnum og hélt að hún væri prinsessan úr uppáhalds bókinni sinni. Shandace gaf sér tíma til að spjalla við litlu stúlkuna og þegar þær kvöddust faðmaði hún hana og gaf henni svo eitt blóm úr brúðarvendinum sínum. Litla stúlkan starði stöðugt á „prinsessuna“ með stjörnur í augunum og virtist ótrúlega hamingjusöm með að hafa hitt Shandace. Brúðkaupsljósmyndarinn tók auðvitað myndir af þessu en þessar krúttlegu myndir má sjá hér fyrir neðan.