Í gær staðfesti Hæstiréttur úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis að Robert Downey, eða Róbert Árni Hreiðarsson eins og hann hét áður, gæti aftur starfað sem lögmaður eftir að hafa hlotið uppreist æru í september síðastliðnum. Robert var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum árið 2008 og missti hann lögmannsréttindi sín í kjölfarið.
Dómur Hæstaréttar að ákveða að veita Róbert leyfi til að starfa aftur sem lögmaður hefur vakið hörð viðbrögð í samfélaginu. Ósk Gunnlaugsdóttir framkvæmdi áhrifamikinn gjörning til stuðnings brotaþolum Róberts. Hún deildi myndbandi af gjörningnum og hafði Bleikt samband við hana til að spyrjast fyrir um uppátækið.
Sjá einnig: Stelpurnar hættar að vera hræddar við Róbert: „Ég grét þegar mamma mín sendi mér þessa frétt í dag“
Sjá einnig: Guðni segist miður sín: Vill hitta fórnarlömbin – Vonar að Róbert starfi ekki sem lögmaður
„Þetta er skítugi þvottur samfélagsins hengdur upp í fánastöng. Uppreist æra kynferðisafbrotamanns með vogarafli íslenska fánans/forsetans undir spili þjóðsöngsins. Óflekkað mannorð verður ekki óflekkuð sál. Unglingshjörtu standa flekkuð. Þetta er ekki í lagi,“
sagði Ósk í samtali við Bleikt.
„Þetta er gert og framið til heiðurs brotaþolum þessa manns. Enn og aftur er mér misboðið hvernig dómskerfið hyglir gerendum og smánar brotaþola.“
Uppreist æra kynferðisbrotamanns from Ósk Gunnlaugsdóttir on Vimeo.
Ósk Gunnlaugsdóttir ásamt Aldísi Coquillon, Hildi Lillendahl Viggósdóttur, Hrafnhildi Hauksdóttur, Kristjönu Ásbjörnsdóttur, Maríu Lilju Þrastardóttur, Sóley Tómasdóttur og Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur hafa skrifað undir opinbert bréf þar sem skorað er á stjórnvöld að endurskoða þá ákvörðun veita Robert Downey uppreista æru.
„Við undirritaðar teljum óásættanlegt að Robert Downey hafi hlotið uppreist æru og skorum á dómsmálaráðherra, auk forseta Íslands, að endurskoða þá ákvörðun. Þá förum við fram á rökstuðning fyrir því að það teljist ekki varhugavert að maður, sem sýnt þykir að haldinn sé barnagirnd, fái aðgang að börnum í samskonar aðstæðum og börnin sem hann gerðist sekur um að misnota. Færa má rök fyrir að það brjóti í bága við 3. 19. auk 34. greinar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem Ísland hefur lögfest. Að lokum óskum við eftir lista yfir alla þá einstaklinga sem hlotið hafa uppreist æru frá aldamótum, ásamt lýsingu á verklaginu sem viðhaft er við þær ákvarðanir.“
Hægt er að lesa bréfið í heild sinni hér.