Karólína Jóhannsdóttir, betur þekkt sem Karó, var að gefa út tónlistarmyndband við lagið „Overnight.“ Karó sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna 2015 fyrir hönd MR og gaf út lögin Silhouette og Wolfbaby í fyrra. Myndbandið var frumsýnt á Paloma í gærkvöldi.
„Lagið fjallar í grunninn um þessa togstreitu sem getur skapast í ástarsamböndum, þessi on/off, haltu mér/slepptu mér spennu, og í myndbandinu erum við að vinna með þrjár mismunandi gerðir af svoleiðis spennu,“
sagði Karólína í samtali við Vísi í gær. Antonía Lár leikstýrði myndbandinu. Ágúst Elí var kvikmyndatökumaðurinn og Atli Karl Bachmann klippti myndbandið.
Við hjá Bleikt erum yfir okkur hrifin af laginu og myndbandinu og getum ekki beðið eftir að sjá meira frá Karó! Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.