Kylie Jenner og rapparinn Travis Scott hafa verið að hittast síðan í apríl. Kylie og Tyga fyrrverandi kærasti hennar hættu saman í mars eftir um þriggja ára samband og stuttu seinna fóru sögusagnir að ganga að hún væri að slá sér upp með Travis. Þau fóru að sjást sífellt oftar saman í kjölfarið, eins og í fremstu röð á körfuboltaleik og hönd í hönd á Coachella. Kendall Jenner, systir Kylie, deildi nýlega mynd á Instagram þar sem hún situr við sundlaug og Travis Scott er í sundlauginni. Maður sér ekki andlitið á þeim sem er í sundlauginni en Kendall merkti Travis inn á myndina eins og sést hér fyrir neðan. Það má því álykta að hann sé byrjaður að vera í kringum fjölskyldu Kylie og sambandið orðið alvarlegt.
Samkvæmt nýjustu fréttum hafa Kylie og Travis tekið sambandið á næsta stig en þau fengu sér eins húðflúr á ökklann, lítið fiðrildi. Þau deildu bæði mynd af húðflúrinu sínu á Snapchat.
Nýlega gaf Travis út lag sem heitir „The Butterfly Effect,“ spurning hvort það séu einhver tengsl þar á milli. Samkvæmt E! News gæti „fiðrildi“ einnig verið gælunafn Travis fyrir Kylie. Ef húðflúrin þeirra eru einhver vísbending þá lítur út fyrir að þau séu mjög hrifin hvort af öðru og að hann sé mögulega nýjasta viðbótin við Kardashian-Jenner klanið.