fbpx
Mánudagur 24.febrúar 2025

Inga Eiríksdóttir fyrirsæta: „Það hefur aldrei verið jafnmikil fjölbreytni í tískuheiminum“

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 14. júní 2017 16:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er búið að vera stórkostlegt að fylgjast með þessum breytingum undanfarin tvö ár. Ég hef verið á hliðarlínunni en samt fylgst vel með og get fullyrt að það hefur aldrei verið jafnmikil fjölbreytni í tískuheiminum þegar kemur að fyrirsætuvali og jákvæðri vakningu gagnvart ólíkum líkamsgerðum eins og núna.“ Þetta segir Inga Eiríksdóttir fyrirsæta í viðtali í nýjasta tölublaði tímaritsins Glamour. Inga hefur vakið athygli fyrir jákvæða vakningu fyrir bættri líkamsímynd og er frábær fyrirmynd.

Inga er einnig í ótrúlega flottum myndaþætti í blaðinu en myndirnar tók Kári Sverriss, Ellen Lofts stíliseraði og Guðbjörg Huldís Kristinsdóttir sá um hár og förðun.

Forsíða Glamour – Mynd/Kári Sverriss

Síðustu ár hefur mikið verið rætt um tískubransann í tengslum við grannt holdafar.  Á dögunum sagði danska fyrirsætan Ulrikke Louise Lahn Høyer frá því á Facebook að hún hafi verið rekin fyrir að vera ekki nógu grönn fyrir tískusýningu. Heilbrigðisráðherra Danmerkur sendi franska tískuhúsinu Louis Vuitton kvörtun vegna málsins sem hefur vakið mikla athygli fjölmiðla. Var Ulrikke meðal annars beðin að fasta í sólahring fyrir sýningu.

Mynd/Facebook

Í viðtali við RÚV í gær sagði fyrirsætan Kolfinna Kristófersdóttir að  átröskun sé félagslega samþykkt innan tískuheimsins. Segir Kolfinna mikilvægt að viðmiðin í tískuheiminum breytist. „Við erum fjölbreytt. Það eru ekki allir sem passa inn í þessa ímynd og hún hefur svo ofboðslega neikvæð áhrif. Og getur hvatt ungar stelpur og unga stráka og fullorðið fólk til þess að þróa með sér átröskun.“

Vonandi er þetta rétt hjá Ingu og að þessi bransi sé að breytast í rétta átt!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Slot mjög hógvær eftir sigurinn: ,,Þeir voru betri og stjórnuðu leiknum“

Slot mjög hógvær eftir sigurinn: ,,Þeir voru betri og stjórnuðu leiknum“
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

Hvað er konudagur?

Hvað er konudagur?
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Þorsteinn gefst ekki upp og hjólar enn á ný í Þorgrím – „Við græðum nákvæmlega ekkert á að gagnrýna hann“

Þorsteinn gefst ekki upp og hjólar enn á ný í Þorgrím – „Við græðum nákvæmlega ekkert á að gagnrýna hann“
Eyjan
Fyrir 14 klukkutímum

Gervigreindin um ræður Áslaugar Örnu og Guðrúnar Hafsteins: Áslaug Arna höfðar til innvígðra – Guðrún höfðar til breiðari hóps kjósenda

Gervigreindin um ræður Áslaugar Örnu og Guðrúnar Hafsteins: Áslaug Arna höfðar til innvígðra – Guðrún höfðar til breiðari hóps kjósenda
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Eru ofnskúffurnar skítugar? Svona er hægt að fá þær skínandi hreinar á einfaldan hátt

Eru ofnskúffurnar skítugar? Svona er hægt að fá þær skínandi hreinar á einfaldan hátt

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.