Það þarf mikið til að ganga í augun á dómurunum í America‘s Got Talent. Dómararnir sjá ógrynni af hæfileikaríkum einstaklingum með alls konar atriði, þannig að það getur reynst keppendum erfitt að gera sitt atriði eftirminnilegt. Það var hins vegar ekki vandamál fyrir hina tólf ára gömlu Darci Lynne frá Oklahoma City.
Darci er búktalari og mætti á svið með kanínunni Petunia. Darcia heillaði alla í salnum, allir stóðu upp úr sætunum sínum og klöppuðu í lok atriðisins. Atriðið var svo stórfenglegt og frábært að Mel B, dómari, gaf því gullna hnappinn. Það þýðir að Darcia og Petunia komast sjálfkrafa í undanúrslit og við getum ekki beðið eftir að sjá næsta atriði! Horfðu á Darciu og Petuniu hér fyrir neðan.