Einu sinni var mjög auðvelt að taka eftir drullusokknum með skeljahálsmen og svo mikið gel í hárinu að það var hægt að brjóta það. En stíll þróast sem gerir það erfiðara fyrir mann að finna út hvaða gaura maður á að forðast eins og heitan eldinn. Sem betur fer gerðu Circa Laughs nýtt myndband þar sem þau sýna „70 ára þróun drullusokks stílsins“ og sést að sjálfsögðu glitta í „man-bun.“