Fyrra undanúrslitakvöld Eurovision er í kvöld og mun Svala stíga á svið fyrir hönd Íslendinga og flytja lagið Paper. Lyrika gerðu skemmtilega „a capella“ ábreiðu af laginu en Lyrika er íslenskur stúlknakvartett sem syngur og semur a capella tónlist. Meðlimir kvartettsins eru Ester Auðunsdóttir, Gígja Gylfadóttir, Guðrún Matthildur Sigurbergsdóttir og Sigrún Ósk Jóhannesdóttir. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan!