Á mánudagskvöldið var Met Gala hátíðin haldin þar sem stjörnurnar mættu hver annarri glæsilegri í stórfenglegum hátískuklæðnaði. Stórstjörnur úr sjónvarpi, kvikmyndum, tónlist og auðvitað tískuheiminum mættu á þennan árlega atburð, sem í þetta sinn var til heiðurs Comme des Garcons hönnuðinum ReiKawakubo. Anna Wintour, KatyPerry, Pharrel Williams, CarolineKennedy, Tom Brady og GiseleBündchen voru aðstandendur hátíðarinnar í ár. Tískan á rauða dreglinum er brennidepill hátíðarinnar og hefur Rihanna fengið mest lof gagnrýnenda fyrir kjól sinn frá CommedeGarcons og segja margir að hún sé hin sanna ímynd Met Gala. Sjáðu hér fyrir neðan skemmtilegar myndir frá Met Gala sem láta þér líða eins og þú hafir hreinlega verið á staðnum!