Grillblað Gestgjafans er komið í verslanir, stútfullt af fjölbreyttu efni að vanda. Grillað góðgæti, grísaréttir, taco-veisla og gómsæt salöt með grilluðu hráefni eru meðal efnis. Einnig er að finna uppskriftir að ljúfu sætmeti í sumarbústaðinn og einföldu grænmeti á grillið.
Bergljót Björk býður í dásamlega sænska sælkeraveislu og Dominique fjallar um ný vín í reynslu, bækur og Gyllta glasið. Hinrik Carl Ellertsson svarar nokkrum skemmtilegum sælkeraspurningum og við heimsækjum Miami sólskins- og sælkeraborgina við hafið! Þetta og margt, margt fleira er að finna í Gestgjafanum.