Þessi náungi er sko hvergi af baki dottinn hvað varðar fegrunaraðgerðir og breytingar á útliti sínu. Margir þekkja hann sem hinn mannlega Ken, en hið rétta nafn mannsins er Rodrigo Alves.
Við höfum áður fjallað um Rodrigo en hann mun hafa notað 54 milljónir króna í aðgerðir. Það var áður en hann keypti sér sixpakkinn. Sú aðgerð var á prýðilegu verði, en Rodrigo greiddi litlar 2.7 milljónir (ISK) fyrir gervimagavöðvana. Flest okkar hefðu kannski skellt sér frekar í ræktina og ráðið einkaþjálfara… en þetta valdi Rodrigo, enda er hann að vonast til að komast í Heimsmetabók Guinness fyrir að hafa eytt mestu í fegrunaraðgerðir.
Botox, hrukkufyllingar, 8 nefaðgerðir, háls-, augna- og andlitslyfting, ígræðsla gervibringuvöðva, kálfamótun, fitusog, hökuígræðsla, færlsa á fitu í rass, hárígræðsla og tilfærsla, fylling í handleggi – og svo núna síðast ígræðsla gervi-magavöðva.
Byggt á grein Viral Thread
http://bleikt.pressan.is/lesa/54-milljonir-krona-i-lytaadgerdir-og-er-nu-kalladur-hinn-mannlegi-ken-myndband/