Katy Perry og Taylor Swift eiga í frægum illdeilum sem má rekja aftur til ársins 2013. Þá yfirgáfu nokkrir dansarar tónleikaferðalag Taylor til að dansa frekar með Katy Perry. Í kjölfarið samdi Taylor lagið „Bad Blood“ og hafa deilurnar staðið yfir síðan. Bleikt fjallaði um nýja lag Katy Perry og Nicki Minaj „Swish Swish“ en í því skjóta þær föstum skotum á ónefndan aðila sem er talinn vera engin önnur en Taylor Swift.
Katy Perry fór í Carpool Karaoke með spjallþáttastjórnandanum James Corden á dögunum. Eftir að þau tóku lagið „Swish Swish“ spurði James Katy um illdeilurnar, hvernig allt byrjaði og hvort þetta ætlar engan enda að taka.
„Ég er tilbúin að þetta kjaftæði sé búið. En það er lögmál um orsök og afleiðingar, þú gerir eitthvað og þá verða viðbrögð. Og treystu mér, það verður brugðist við,“
sagði Katy og bætti við: „Þetta snýst allt um karma.“ James Corden spurði hvort það væri nóg að fá skilaboð frá Taylor Swift til að rifrildinu myndi ljúka og Katy svaraði því játandi.
Það verður áhugavert að sjá hvernig Taylor bregst við þessu! Horfðu á myndbandið af Katy Perry og James Corden í Carpool Karaoke hér fyrir neðan.