Það er mikil eftirvænting og spenna fyrir nýja raunveruleikaþættinum hennar Kylie Jenner „Life of Kylie.“ Fyrsta stiklan fyrir þættina kom út nýverið, þú getur horft á hana hér. Kim Kardashian, Khloé Kardashian og Kylie Jenner eru allar með sín eigin verkefni í vinnslu. Kylie með sinn raunveruleikaþátt, Kim Kardashian byrjar með raunveruleikaþáttinn „Glam Masters“ þar sem hún leitar að fegurðar bloggara og förðunarfræðing til að verða nýjasti meðlimur af hennar svo kallaða „glam team.“ Khloé Kardashian verður upptekin með aðra seríu af sínum þáttum „Revenge Body.“
Kim og Khloé Kardashian ræddu við E! News í gær þar sem þær ræddu um sínar skoðanir og tilfinningar varðandi nýju þáttaröð Kylie „Hún er þegar atvinnumaður í þessu,“ sagði Kim.
„Þetta er eitthvað sem henni hefur langað að gera, að sýna öðruvísi hlið af sér. Hún hefur ekki verið það opin í okkar þætti. Þannig þú ert pottþétt að fara að sjá vini hennar, ástarlíf hennar, hvað hún gerir daglega og hversu mikið hún raunverulega leggur á sig í vinnu.“
Khloé bætti við: „Þetta verður meira að segja nýtt fyrir okkur því við eyðum ekki tíma með vinum hennar. Ég meina hvað í fjandanum gerir hún allan daginn? Þetta er fyndið því við Kim erum saman allan daginn. En með Kylie verð ég áhorfandi eins og allir aðrir.“