Tíundi áratugurinn var ekki góður áratugur fyrir augabrúnir. Plokkarinn var í miklu uppáhaldi og augabrúnir plokkaðar svo mikið að aðeins þunn lína sat eftir. En þetta var nú tískan og hver veit nema þetta komi aftur í tísku eftir einhver ár? Vonum samt nú ekki! Sjáðu hér fyrir neðan á myndum frá Elle hvernig nokkrar stjörnur líta út með svo kallaðar „90‘s“ augabrúnir. Og já það er frekar furðulegt!