Kylie Jenner ætlar að sýna aðdáendum sínum persónulegri hlið af sér heldur en hún hefur gert hingað til. Hún er að byrja með sinn eigin raunveruleikaþátt „Life with Kylie,“ þættirnir eru „spin-off“ af Keeping up with the Kardashians. Það verða átta þættir í seríunni og verður fyrsti þátturinn sýndur 6. júlí. Í þáttunum fáum við að fylgjast með Kylie og hennar daglega lífi, hvernig hún stjórnar fyrirtækinu sínu og hvernig hún höndlar frægðina.
„Það er ímynd sem ég þarf að halda við, síðan er það ég: Kylie,“
segir hún í stiklunni. Hún segir líka að þótt hún hafi alist upp fyrir framan myndavél þá þekkir fólk hana ekki eins og þau halda að þau geri.
Horfðu á stikluna hér fyrir neðan.