Marmari er eitt af heitustu trendunum þessa dagana. Símahulstur, borð, hillur og neglur eru meðal þess sem er vinsælt að eiga í marmarastíl. Nú er búið að taka marmaratrendið á næsta stig og við erum að elska það. Marmaravarir eru nýjasta Instagram æðið og er blandað hinum ýmsu litum til að ná fram fallegri marmara áferð. Hér er kennslumyndband sem Bored Panda greindi frá sem sýnir hvernig er hægt að gera marmaravarir.