Sara Petty er nemandi við Bowling Green State University og tók eftir að margir voru að tísta um klæðnað kvenna. Tístin fjölluðu einna helst um það hverju konur yfir 90 kíló ættu aldrei að klæðast. Þó að tístunum væri ekki beint til hennar fékk hún nóg af þessari gagnrýni og „reglum“ fyrir líkama sem eru ekki grannir. Þannig hún tók ráð twitter-notendanna og henti þeim í ruslið þar sem þau eiga heima.
Það næsta sem hún gerði var að klæða sig í þau föt „sem konur yfir 90 kíló eiga ekki að klæðast“ og taka myndir af sér sem hún setti með meðfylgjandi skilaboðum: „Stelpur: Klæðist því sem þið viljið.“
Girls: Wear whatever the hell you want. pic.twitter.com/AjeudTM9rH
— Sara (@_spetty) March 9, 2016
Hún lítur stórglæsilega út á öllum myndunum og sýnir þessum nettröllum að það skiptir engu máli í hvaða stærð þú ert í. Stærð þín á ekki að takmarka fataval þitt og það kemur fólki ekkert við í hverju þú vilt klæðast. Við erum ekkert smá ánægðar með Söru að svara þessum fitufordómum á svona frábæran hátt. Við erum öll falleg sama í hvaða stærð við erum og ekki láta neinn segja ykkur annað.
Ég vona að konur skilji mikilvægi þess að hætta að rífa hvor aðra niður og frekar styðja hvor aðra. Við sem konur höfum margt á móti okkur, við þurfum ekki aðrar konur á móti okkur líka.
Ég vona líka að stelpur geti aðskilið hverjar þær eru frá tölunni sem sést á vigtinni og átti sig á að það er engin tala, há eða lág, sem ræður hversu mikils virði þær eru eða hvort þeim megi líða vel með sig. Líkamskömm mun líklegast alltaf vera til staðar á einhvern hátt, en ég vona að færslan mín hjálpi alla vega einhverjum konum að líða vel þrátt fyrir það.
Skrifaði Sara í yfirlýsingu sem hún sendi Huffington Post.
Sjá einnig:
25 hlutir sem feitar stelpur mega gera (þó að þeim sé sagt annað)!