Sumarið er alveg að bresta á og þá að sjálfsögðu kemur mikil íslöngun í kjölfarið. Við erum með gleðifréttir fyrir alla „gothara“ og fólk með svartar sálir, því nú getur þú loksins fengið ís í stíl við svörtu sálina þína. Little Damage Ice Cream Shop í Los Angeles er búðin á bak við kolsvarta ísinn með möndlu og viðarkols bragði sem er að gera allt klikkað á Instagram.
Þetta er ekki eini staðurinn sem hægt er að fá svartan ís, en Morgenstern í New York byrjaði að selja svartan „kókosösku“ ís í fyrra.
Heyrst hefur að ísinn sé bragðgóður en það sé einn galli eins og sést á myndinni hér fyrir neðan.