Nú gæti hámark hipstersins verið fundið, og hvar í ósköpunum… jú, auðvitað í Brooklyn! Þar hefur veitingastaður opnað sem býður eingöngu upp á rétti úr avocado – og þá erum við að tala um að avocadoið er AÐALATRIÐIÐ í hverjum einasta rétti á matseðlinum.
Á heimasíðu staðarins, sem hetir Avocaderia, kemur fram að hann sé heimsins fyrsti avocado bar. Þar er að finna upplýsingar um réttina sem eru seldir, sem og ýmiss konar fróðleik um heilnæmi þessa dásamlega ávaxtar.