fbpx
Þriðjudagur 26.nóvember 2024

Bylgja vill fá Tinnu Alavis til að pródúsera þrítugsafmælið!

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 26. apríl 2017 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bylgja Babýlons og Snjólaug Lúðvíksdóttir gætu vel verið fyndnustu manneskjur landsins. Þær hafa sem betur fer gert sér grein fyrir því og starfa því við uppistand, okkur almúganum til sannrar ánægju.

Í kvöld ætla þær að stíga á stokk á Rósenberg og fara með gamanmál. Dagskrána kalla þær Fiskur og franskar.

 

Við fengum Bylgju og Snjólaugu til að segja okkur frá því sem þær halda mest upp á. Svo mælum við eindregið með nýja matseðlinum á Rósenberg… já og það er búið að færa sviðið, og búa til æðislegan grænan jurtavegg, og mála og snúa gömlu sumarbústaðapanelstemmningunni á hvolf! Húrra fyrir Óla og hans ný-norræna-komfortfúdgengi í eldhúsinu!

Uppáhalds hjá Bylgju og Snjólaugu:

Uppáhaldsmatur

Bylgja: Kjúklingur, franskar og kokteill og bara eiginlega allt sem hefur ekki lent í fæðu-gjaldþrotinu sem er chili og engifer.

Snjólaug: Bernaise sósa.

Uppáhaldsbíómynd

Bylgja: Metropolis, Dogville, og þarna myndin með Denzel Washington þar sem er einhver svona „demon“ sem er alltaf að syngja „Time is on my siiiiiiideee”.

Snjólaug: Ég horfði á Lobster um daginn og hún er fyndin og frumleg. Mæli með.

Uppáhaldsgrín

Bylgja: Að segja „Það er eitthvað skrýtin lykt hérna” og láta fólk þefa þegar ég er nýbúin að prumpa.

Snjólaug: Parks & Rec.

Uppáhaldsfimmaurabrandari

Bylgja: Hvað er uppáhalds grænmeti þjóðverja? – Michael Schumacher

Snjólaug: Fíll og mús fóru saman sund. í klefanum segir fíllinn: Nei fjandinn ég gleymdi sundskýlunni minni. Þá segir músin: Allt í lagi, ég er með tvær.

Uppáhaldstónlist

Bylgja: Allt með Justin Bieber.

Snjólaug: Ég vildi að ég gæti sagt nafn á hljómsveit sem engin hefur heyrt talað um en „The Shape of You” með Ed Sheeran er uppáhaldslagið mitt um þessar mundir og ég skammast mín ekkert fyrir það.

Uppáhaldsmanneskja

Bylgja: Akkúrat núna er það Tinna Alavis því mig langar án gríns að fá hana til að framleiða þrítugsafmælið mitt í næsta mánuði og það er kannski líklegra að hún geri það pro-bono ef hún er uppáhalds manneskjan mín.

Snjólaug: Idris Elba. Það eina sem stendur í vegi fyrir ást okkar er landafræði.

Uppáhaldsnærbuxur

Bylgja: Svartir boxerar sem ég kaupi 3 í pakka í Hagkaup (þetta er ekki sponsað svar samt).

Snjólaug: Hreinar nærbuxur.

Uppáhaldsborg

Bylgja: Ég hef ekki komið í nógu margar borgir til að svara þessu, en Berlín er minnst uppáhalds, bara svo það sé á hreinu.

Snjólaug: París.

Uppáhaldsbók

Bylgja: Synir duftsins eftir Arnald. Hef lesið hana nokkrum sinnum og er alltaf bara „wow Íslendingi tókst að skrifa scifi. Það er næsari.”

Snjólaug: The Picture of Dorian Gray

 

Uppáhaldsafslöppun

Bylgja: Að borða kjúkling í baði og horfa á þátt á sama tíma.

Snjólaug: Liggja upp í rúmi með tölvuna á maganum.

Uppáhaldsdagur

Bylgja: Sprengidagur. Ég æli stundum en það er svo mikið þess virði.

Snjólaug: Sumardagurinn fyrsti er skemmtilega sorglegur frídagur á Íslandi.

Uppáhaldsdýr

Bylgja: Lamadýr. Því þau eru eins og loðnar gíraffakindur og hrækja oft á fólk. Sem ég öfunda þau af, því það er ekki samfélagslega samþykkt að ég geri það.

Snjólaug: Bylgja Babýlons.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Wan-Bissaka skoraði í nokkuð óvæntum sigri West Ham

Wan-Bissaka skoraði í nokkuð óvæntum sigri West Ham
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Útlit fyrir leiðindaveður á kjördag – Stíf norðaustanátt með snjókomu eða rigningu

Útlit fyrir leiðindaveður á kjördag – Stíf norðaustanátt með snjókomu eða rigningu
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Ummæli Amorim um Bruno vekja athygli – Segist þurfa mikinn tíma til að laga hlutina

Ummæli Amorim um Bruno vekja athygli – Segist þurfa mikinn tíma til að laga hlutina
Eyjan
Fyrir 12 klukkutímum

Orðið á götunni: Ræður risastóri hópurinn – LAUSAFYLGIÐ – úrslitum?

Orðið á götunni: Ræður risastóri hópurinn – LAUSAFYLGIÐ – úrslitum?
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Fullyrða að Liverpool hafi rætt við umboðsmann Salah í mánuð – Mikill munur á kröfum og því sem Liverpool vill borga

Fullyrða að Liverpool hafi rætt við umboðsmann Salah í mánuð – Mikill munur á kröfum og því sem Liverpool vill borga
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Mamman í sjokki eftir heimsókn lögreglu – 10 ára sonurinn labbaði einn út í búð um hábjartan dag

Mamman í sjokki eftir heimsókn lögreglu – 10 ára sonurinn labbaði einn út í búð um hábjartan dag

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.