Stundum er ekki sniðugt að skilja dýrin ein eftir heima, en það er oft nauðsynlegt. Maður þarf nú að mæta í vinnu, fara út í búð, hitta vini og fjölskyldu og svo lengi mætti telja. Sumir eigendur geta treyst dýrunum sínum alveg, þau eru stillt og prúð og rífa ekki klósettpappírsrúlluna í sig og dreifa um allt hús. En svo eru það sumir eigendur sem eru í endalausu veseni þegar þeir þurfa að skilja eftir dýrin ein heima. Það er misjafnt eftir dýrinu hvort það fyllist af eftirsjá þegar eigandinn kemur heim og sér afrakstur villingsins, eða það verður stolt af því sem það gerði. Hér eru nokkrir sem sjá mjög mikið eftir því að hafa skilið dýrið eftir heima, sjáðu bara hvað þau gerðu!
Sjáðu fleiri myndir hér sem Bored Panda tók saman.