Snyrtivörufyrirtæki Kylie Jenner, Kylie Cosmetics, hefur stækkað ört á síðasta ári. Hún byrjaði með nokkur lip-kit og síðan þá hefur úrvalið orðið stærra og fjölbreyttara með hverju mánuðinum. Hún gerði sitt fyrsta samstarfsverkefni með systur sinni Khloé Kardashian, og nú er komið að öðru samstarfsverkefninu og í þetta sinn með Kim Kardashian.
Það er oft talað um að Kim og Kylie séu líkastar af öllum systrunum og vinsælastar í þokkabót, þannig búast má við að vörurnar úr samstarfi þeirra eigi eftir að seljast eins og heitar lummur eins og flest allt frá snyrtivörumerki Kylie.
KKW by Kylie Cosmetics línan samanstendur af fjórum krem varalitum þar sem Kim var innblásturinn fyrir litunum og formúlunni. Litirnir heita: „Kimberly,“ „Kim,“ „Kiki“ og „Kimmie.“ Allir litirnir eru svokallaðir nudes og fara í sölu þann 25. apríl klukkan 22.00 á íslenskum tíma.
https://www.instagram.com/p/BTCPlcWlX4t/
https://www.instagram.com/p/BTFT3S3BDoi/
https://www.instagram.com/p/BTFRfItlmqd/