Grillaður lax með mangó chutney og hrísgrjónum með karrýblöndu – einfalt og fljótlegt. Uppskriftin hefur oft verið notuð á heimilinu – með mismunandi útfærslum. Þessi er mjög einföld og góð.
Magn: fyrir 5-7
Tími: um 35 mínútur
Flækjustig: auðvelt
Lax
1 flak af laxi – u.þ.b 1200 g
1 dl mangó chutney
1 dl pistasíuhnetur
Hrísgrjón með karrýblöndu
3 – 4 dl hrísgrjón
3 – 5 msk Karrýblanda fyrir hrísgrjón og kínóa (fæst í Krydd & Tehúsinu)
5 – 7 dl heitt vatn
Olía
1 – 1½ tsk salt
Sósa
Lífræn jógúrt mangó – Bio-Bú (170 g)
Lax
Ef borða á roðið þarf að skafa hreistrið af með hníf (frá sporði og upp úr). Laxinn skolaður og settur á álbakka
Mangó chutney smurt á fiskinn og pistasíum stráð yfir
Laxinn settur á heitt grill og grillaður í 15 – 20 mínútur (fer eftir hitanum á grillinu)
Hrísgrjón með karrýblöndu
Olía sett í pott og hituð. Þegar kominn er góður hiti eru hrísgrjónin sett ofan í pottinn og hrært í. Gott að láta grjónin krauma aðeins
Kryddblöndunni bætt við og saltað – hrært
Heitu vatni blandað saman við – hiti lækkaður og hrært aðeins
Soðið á lægsta hita í 17 – 20 mínútur
Sósa
Jógúrtin sett í könnu og borin fram með
Meðlæti
Gott með brakandi fersku grænmeti.