Sambandsslit og samfélagsmiðlar passa illa saman. Það er eitthvað öfugsnúið við að hafa opinberar færslur frá öllum stigum sambands sem gekk ekki upp og jafnvel endaði hræðilega. Það gerir bara hlutina verri Það eru ekki allir sem ákveða að eyða öllum myndum og færslum af fyrrverandi, sumir láta það alveg vera en svo er það þessi ákveðna kona sem ákvað að breyta texta á myndum á Instagram.
Hún breytti textanum undir myndum af henni og fyrrverandi kærastanum sínum til að segja fólki sannleikann um hann. Hann hélt fram hjá henni og hún skrifaði undir myndirnar hvernig hann hegðaði sér gagnvart henni á þeim tíma sem hver mynd var tekin. Sjáðu færslurnar hér fyrir neðan.