fbpx
Mánudagur 24.febrúar 2025

Guðni – „Leggðu blómkál og bjúga hlið við hlið á eldhúsborðið“

Ritstjórn Bleikt
Föstudaginn 14. apríl 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er margt sem mig langar að segja þér um næringu, reyndar svo margt að það gæti fyllt heila bók. Hér læt ég samt nægja að stikla á stóru. Sumt af því er bratt en öðru muntu eiga auðveldara með að kyngja. Reynslan segir mér að fyrir langflestum séu mataræði trúarbrögð.

Hver og einn hefur skapað sér vana og kæki í neyslu og margir eru tilbúnir að verja mynstrið með kjafti og klóm. Kjötætur gera stólpagrín að grænmetisætum og grænmetisætur líta niður á kjötætur. Samt hafa báðir aðilar rétt fyrir sér – báðir eru að sækja sér það sem þeir vilja og þurfa. Hafðu þetta í huga við lesturinn – fylgstu með eigin viðbrögðum, skynjaðu gagnvart hvaða upp- lýsingum þú upplifir viðnám og dragðu af því lærdóm. Ekkert í heiminum breytist á meðan allir ríghalda í sinn sannleika, en allt breytist þegar þú ert fús til að ögra þeim viðhorfum sem þú hefur hingað til lifað eftir.
Samt er staðreyndin sú að enginn hefur fundið hinn stóra sannleika og við erum satt best að segja fremur skammt á veg komin í því að rannsaka áhrif næringar á líkama og sál. Þess vegna er hyggjuvitið svona mikil- vægt – að styðjast við gamaldags almenna skynsemi og hlusta á röddina innra með sér. Þetta geturðu prófað með einföldum hætti. Leggðu blómkál og bjúga hlið við hlið á eldhúsborðið og spyrðu þig með hjartanu:

Hvor fæðutegundin er heilnæmari og nær náttúrunni?

Hvor þeirra virkjar líkamann og færir honum neista og rafmagn?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 6 klukkutímum

Sótti um skilnað eftir að eiginmaðurinn baulaði á Taylor Swift – „Segir mér allt sem ég þarf að vita um þennan mann“

Sótti um skilnað eftir að eiginmaðurinn baulaði á Taylor Swift – „Segir mér allt sem ég þarf að vita um þennan mann“
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum
Hvað er konudagur?
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

England: Liverpool með 11 stiga forskot á toppnum

England: Liverpool með 11 stiga forskot á toppnum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Young birti athyglisverða X færslu – Vitnaði í fræg ummæli Mourinho

Young birti athyglisverða X færslu – Vitnaði í fræg ummæli Mourinho
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Hvað gerist í líkamanum ef þú drekkur orkudrykk?

Hvað gerist í líkamanum ef þú drekkur orkudrykk?
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Salah kveikir í City mönnum fyrir stórleikinn: Segir að Haaland lifi auðveldu lífi – ,,Þægilegt fyrir hann“

Salah kveikir í City mönnum fyrir stórleikinn: Segir að Haaland lifi auðveldu lífi – ,,Þægilegt fyrir hann“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Allt vitlaust eftir að hann lét þessi ummæli flakka í vikunni – ,,Ég ætlaði ekki að móðga neinn“

Allt vitlaust eftir að hann lét þessi ummæli flakka í vikunni – ,,Ég ætlaði ekki að móðga neinn“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.