Hvað gerir hluti að okkar uppáhalds… hvers vegna verður einhver matur að uppáhalds, og hvers vegna höldum við meira upp á einn lit en annan? Jú svarið liggur líklega í tilfinningum. Ef við höfum verið sérdeilis heppin eða hitt skemmtilegt fólk þá daga sem við höfum skartað gulum jakkafötum eða kjól, er líklegra að sá litur eignist sess í hjarta okkar. Bragð af mat sem við nutum á góðri stund lífsins er líklegt til að framkalla góðar tilfinningar gegnum taugaboð í heilanum… Og svona pælingum gætum við haldið lengi áram.
Það er alltaf gaman að fá að skyggnast inn í heilabú þekktra einstaklinga – og okkur á Bleikt datt í hug að birta á næstunni nokkur uppáhaldsviðtöl við uppáhaldsfólk um uppáhöldin þeirra!
Uppáhaldsmatur – Soðinn fiskur, smjör og kartöflur – sushi og Nautasteik með sveppasósu því þá verð ég stór og sterk.
Uppáhaldsbíómynd – Heimildamynd um Amy Winehouse hún er vel unnin og situr eftir í manni.
Uppáhaldstónlist – Rokk, Blues, Jazz, soul er tónlist sem snertir hverja einustu frumu og taug í mér.
Uppáhaldsborg – Uuuuuuu
Uppáhaldsveitingastaður – Matstofan í Garðabæ frábær þjónusta þar sem þjónar taka fagnandi á móti fólki og dansa í kringum kúnnana sína svo er maturinn það góður að ég verð til vandræða af stunum, svo er reyndar annar staður í miklu uppáhaldi sem heitir VON í Hafnarfirðinum ég get ekki lýst því í orðum hvað maturinn þar er guðdómlegur.
Uppáhaldshátíð – Blues Hátiðin fer með mann í annan heim.
Uppáhaldslitur – Fer eftir skapi….núna er það blár því hann veitir mér orku og gleði
Uppáhaldsmanneskja – Einmitt núna er það Amy Winehouse hún var svo mögnuð manneskja sem fór alltof snemma ég er mikið að stúdera hennar feril og ætla að heiðra hana með 10 manna bandi annaðkvöld 13. apríl á Rosenberg og það er hægt að nálgast miða á tix.is.
Uppáhaldsklæðnaður – Mér líður best þegar Andrea og Kron Kron sjá um að dressa mig….annars er ég hversdags týpan Gallaskyrta-Gallbuxur og leðurjakki voða basic.
Uppáhaldsárstíð – Akkúrat núna, það er svo fallegt.
Uppáhaldsdagur – Sko það eru allir dagar í uppáhaldi hjá mér.
Uppáhaldsdrykkur – Sódavatn með sítrónu – Appelsín – Kaffi.
Uppáhaldsafslöppun – ég slappa vel af þegar ég fer í sund og syndi nokkrar ferðir leggst svo í pottinn þangað til ég soðna.