Kylie Jenner ætlar að sýna aðdáendum sínum persónulegri hlið af sér heldur en hún hefur gert hingað til. Hún er að byrja með sinn eigin raunveruleikaþátt „Life with Kylie,“ þættirnir eru „spin-off“ af Keeping up with the Kardashians. Það verða átta þættir í seríunni sem verða sýndir í sumar. Í þáttunum fáum við að fylgjast með Kylie og hennar daglega lífi, hvernig hún stjórnar fyrirtækinu sínu og hvernig hún höndlar frægðina.
„Síðustu ár hafa verið ótrúlegt ferðalag með stuðningi aðdáendanna minna. Þessi þáttur leyfir mér að sýna þeim alla spennandi hlutina sem ég er að vinna að ásamt persónulegum tíma með vinum,“
sagði Kylie Jenner við E!Online.
Hver ykkar eru spennt og ætla að fylgjast með?