Það eru ekki bara húsgöng á viðráðanlegu verði sem laðar fólk að sænska húsgagnarisanum IKEA. Mötuneytið er gríðarlega vinsælt og ekki er verra að geta skráð börnin inn á sérstakt leiksvæði þar sem þau geta skemmt sér konunglega á meðan foreldrarnir versla. Það fór því fyrir brjóstið á mörgum þegar IKEA í Singapúr kynnti breytingar á leiksvæði barna í verslunum sínum.[ref]http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett/ikea-er-i-thann-mund-ad-setja-facebook-a-hlidina–spjaldtolvur-i-stad-leiktaekja[/ref]