Fyrr í þessum mánuðu hélt kínverski samfélagsmiðillinn Tencent nokkra tónlistarviðburði sem kallast „Husband Exhibition“ eða „Sýning eiginmanna,“ í kínverskum háskólum. Hugmyndin var að sýna nýjar poppstjörnur sem er hægt að hlusta á á vefsíðu fyrirtækisins. Hugtakið „eiginmaður“ er notað af kvenkyns kínverskum aðdáendum þegar þær vísa í karlkyns poppstjörnur sem eru svo heillandi að þær dreymir um að giftast þeim.
Enter Acrush er mjög vinsæl ný „strákahljómsveit“ sem kom fram á síðasta viðburðinum. Hljómsveitin kom tónlistargestum á óvart, í henni eru ekki strákar, heldur stúlkur með óræð ytri kyneinkenni (androgynous girls). Enter Acrush samanstendur af fimm konum í kringum tvítugt, þær eru allar með stuttar og töff hárgreiðslur og klæða sig „strákalega.“
Þó svo að fyrsta tónlistarmyndbandið frá hljómsveitinni komi ekki fyrr en í apríl er hljómsveitin komin með stóran aðdáendahóp og er með um 900 þúsund fylgjendur á Weibo.
„Hljómsveitin boðar frelsi, hún er ekki bundin við ramma,“ er hugmyndin á bak við Enter Acrush. Umboðsmaður hljómsveitarinnar, Zhou, segir að þau ætli að forðast að nota orðin „strákur“ eða „stelpa“ þegar það er verið að kynna hljómsveitina. Í staðinn hafa þau valið kynlausan frasa, meishaonian, eða „myndarleg ungmenni.“
Hins vegar er ákveðinn tvískinnungur í þessum skilaboðum frelsi, þar sem fyrirtækið leyfir þeim ekki að tala um kynhneigð sína. Allir fimm meðlimirnir hafa klætt sig í strákalegan klæðnað í daglegu lífi sínu löngu áður en þær fóru fyrst á svið. Einn meðlimurinn segir frá því að þegar hún var krakki var oft athugað með kyn hennar þegar hún ætlaði á almenningssalerni. QZ greinir frá.
Við hjá Bleikt erum mjög spennt yfir tónlistarmyndbandinu sem kemur út í apríl og munum að sjálfsögðu deila því með lesendum okkar.