fbpx
Mánudagur 24.febrúar 2025

„Hamingja er ekki stærð“ – Var haldin átröskun – Sjáðu myndirnar

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 8. mars 2017 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við höfum öll séð þúsund sögur af þyngdartapi á netinu. Fólk segir sögu sína hvernig það létti sig og skipti yfir í heilbrigðan lífstil, en stundum getur þráhyggja samfélagsins um grannt útlit látið okkur gleyma hvað er heilbrigt fyrir hvern og einn einstakling.

Breski bloggarinn Megan Jayne Crabbe sagði sögu sína af þyngdaraukningu. Hún deildi fyrir og eftir myndum til að sýna hvernig líkaminn hennar hefur breyst eftir að hún sigraðist á átröskun.

https://www.instagram.com/p/BQ8trnBhcQG/

Með myndinni skrifaði hún:

„Bíddu þannig þú ákvaðst að EYÐILEGGJA líkama þinn?“
Nei ég hætti bara að pína mig sjálfa hvern einasta dag til að passa í einhverja ímynd sem mér var aldrei ætlað að vera.

„En þú virkaðir mun heilbrigðari áður.“
Það er fyndið, þú virkar mun gáfaðri fyrir mér áður en þú miðaðir heilsu við þyngd og gleymdir að andleg heilsa er heilsa líka.

„Þú gast verið eins og elskað líkamann þinn, þú þurftir ekki að verða feit.“
Ég hefði getað verið eins og spíralað aftur í átröskunina sem drap mig næstum því þegar ég var 15 ára. Ég hefði getað haldið áfram að svelta mig og æfa óhóflega mikið alla daga en það hefði aldrei leitt mig í að elska mig sjálfa. Sama hvað ég missti mörg kíló þá var alltaf eitthvað til að hata. Og auðvitað, fólk ÞARF ekki að þyngja sig til að elska sig sjálft, þetta er bara það sem líkaminn minn þurfti svo ég gæti verið andlega frjáls. ÞETTA ER HAMINGJUSAMI LÍKAMI MINN.

„En auðvitað getur þú ekki verið hamingjusöm lítandi svona út, ég gæti aldrei verið hamingjusöm í þessum líkama.“
Ég hélt ég gæti það ekki heldur, en eins og kom í ljós, þá er hamingja ekki stærð. Ég eyddi allt of mörgum árum að trúa því. Ég ætla ekki að hætta að láta fólk vita að það verðskuldar hamingju alveg eins og það er. Fólk verðskuldar að lifa núna, ekki eftir fimm kíló. Allir eiga skilið andlegt frelsi. Þannig til þeirra sem eru að lesa þetta: Ég vona að þú fáir frelsið þitt líka, sama hvernig það lítur út. Ég mun hvetja þig alla leið.
P.s. Þetta eru allt ummæli sem ég fékk á síðustu fyrir/eftir mynd, gott fyrir mig að þau láta mig vilja halda áfram.

Frábær skilaboð frá stórkostlegri dömu!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Slot mjög hógvær eftir sigurinn: ,,Þeir voru betri og stjórnuðu leiknum“

Slot mjög hógvær eftir sigurinn: ,,Þeir voru betri og stjórnuðu leiknum“
Fókus
Fyrir 9 klukkutímum

Hvað er konudagur?

Hvað er konudagur?
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Þorsteinn gefst ekki upp og hjólar enn á ný í Þorgrím – „Við græðum nákvæmlega ekkert á að gagnrýna hann“

Þorsteinn gefst ekki upp og hjólar enn á ný í Þorgrím – „Við græðum nákvæmlega ekkert á að gagnrýna hann“
Eyjan
Fyrir 14 klukkutímum

Gervigreindin um ræður Áslaugar Örnu og Guðrúnar Hafsteins: Áslaug Arna höfðar til innvígðra – Guðrún höfðar til breiðari hóps kjósenda

Gervigreindin um ræður Áslaugar Örnu og Guðrúnar Hafsteins: Áslaug Arna höfðar til innvígðra – Guðrún höfðar til breiðari hóps kjósenda
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Eru ofnskúffurnar skítugar? Svona er hægt að fá þær skínandi hreinar á einfaldan hátt

Eru ofnskúffurnar skítugar? Svona er hægt að fá þær skínandi hreinar á einfaldan hátt

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.