Kjólahönnuðurinn Monique Lhuillier hannar einstaklega fallega brúðarkjóla sem njóta mikilla vinsælda. Hún hefur nú tekið ást sína á brúðkaupum skrefinu lengra og var að gera brúðkaupslínu með merkinu essie. Línan inniheldur sex naglalökk og er væntanleg á markað í apríl. Monique segir að allar brúðir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í þessari fallegu nýju essie línu.
Litirnir eru virkilega flottir og er nokkuð ljóst að fleiri en brúðir og brúðarmeyjar munu næla sér í þá. Við látum ykkur auðvitað vita þegar essie x Monique Lhuillier brúðarlökkin koma til Íslands.