Þessi skúffukaka sló rækilega í gegn í Bökunarmaraþoni Blaka – svo mikið að ég bakaði hana tvisvar. Það þurfa einfaldlega allir að eiga góða skúffukökuuppskrift og þessi svínvirkar í hvert einasta sinn! Þessi uppskrift passar í litla skúffu en ef þið viljið baka hana í stóra ofnskúffu þá mæli ég með að tvöfalda hana.
Langbesta skúffukakan
Hráefni
Skúffukaka
2 bollarKornax-hveiti
2 bollarsykur
1/4 tsksjávarsalt til að skreyta
230 gsmjör frá MS
4 mskkakó frá Kötlu
1 bollisjóðandi heitt vatn
1/2 bollisúrmjólk frá MS
2stór Nesbú-egg (þeytt)
1 tskmatarsódi
1 tskvanilludropar frá Kötlu
Krem
150 gmjúkt smjör frá MS
300 gflórsykur frá Kötlu
1/2 bolliGestus-karamellusósa
1 tskvanilludropar frá Kötlu
1/4 tsksjávarsalt frá Kötlu
1-2 msknýmjólk frá MS
1-2 bollarBrak frá Góu
3-4 Mskkakó frá Kötlu
Leiðbeiningar
Skúffukaka
Hitið ofninn í 180°C og smyrjið eina litla ofnskúffu.
Blandið hveiti, sykri og salti vel saman í skál.
Bræðið smjörið í potti og bætið kakói og sjóðandi heitu vatni saman við þegar smjörið er bráðnað.
Blandið súrmjólk, eggjum, matarsóda og vanilludropum saman í lítilli skál.
Blandið súrmjólkurblöndunni saman við hveitiblönduna og síðan vatnsblöndunni. Hrærið allt vel saman.
Hellið blöndunni í skúffuna og bakið í 25-30 mínútur.
Krem
Þeytið smjörið í 2-3 mínútur og hrærið síðan flórsykrinum saman við.
Blandið karamellusósu, kakó, vanilludropum og salti vel saman við.
Ef kremið er of þykkt má bæta smá mjólk saman við.
Smyrjið kreminu ofan á kólnaða kökuna og skreytið með Braki.