Kendall Jenner finnur sína innri Marilyn Monroe í nýjasta verkefninu sínu fyrir LOVE magazine. Í næstum tveggja mínútna löngu myndbandi byrjar hún á því að dansa í ýmsum nærfötum og sundfötum á meðan hún „lip-syncar“ við eitt af frægustu lögum Marilyn Monroe, „Diamonds Are a Girl‘s Best Friend.“ Og að sjálfsögðu er hún með demantakórónu. Eftir það lag tekur hún nokkrar línur úr „I Want to Be Loved by You“ úr Some Like It Hot. Hún vísar einnig í myndirnar The Seven Year Itch og Let‘s Make Love.
Kendall hefur unnið með LOVE magazine í dágóðan tíma núna og hefur tekið upp sex önnur myndbönd með tímaritinu. Hún hefur einnig unnið bak við myndavélina þegar hún tók myndir af dóttur Cindy Crawford, Kaia Gerber, fyrir tímaritið. Ljósmyndun er ástríða fyrir Kendall.
„Ég hef margar möppur í tölvunni og símanum mínum með myndum sem ég hef tekið í gegnum lífið, af vinum mínum, af öllu sem ég hef gert. Ég hef alltaf elskað ljósmyndun. Og ég geri enn þá hluti sem ég vill halda persónulegum,“
sagði Kendall við tímaritið.