Á ritstjórnarskrifstofu Bleikt er stuð akkúrat núna því við erum að blasta Emmsjé Gauta. Lagið er Þetta má, en í því kemur öðlingurinn Herra Hnetusmjör fram með Emmsjé okkar. Herrann sýnir hreint ótrúlega takta í laginu, hraði og flæði er líka hans sérgrein.
Eins og stundum áður í myndböndum sést Kela trommara í Agent Fresco bregða fyrir – enda er ávallt prýði af þeim pilti.
Lagið er af plötunni Sautjándi nóvember en hana má sækja frítt á heimasíðu tónlistarmannsins.