Rauði sófinn með Röggu Eiríks er á dagskrá ÍNN alla föstudaga kl. 21.30. Eftir frumsýningu detta þættirnir svo að sjálfsögðu inn á alnetið – meðal annars hingað inn á Bleikt.
Í fimmta þætti var Magnús Hákonarson gestur Röggu. Hann er formaður BDSM á Íslandi – félags áhugafólks um bindileiki, drottnun/undirgefni, sadó/masókisma og munalosta. Spjallið er vægast sagt áhugavert!